Laus störf
Sérfræðingur á efnahagssviði
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í vísitöludeild. Deildin sér um útreikning verðvísitalna, úrvinnslu útgjaldarannsóknar og alþjóðlegan verðsamanburð. Starfið felur í sér vinnu við mælingu og útreikning verðvísitalna og annarrar verðtölfræði. Starfsmaðurinn mun auk þess vinna að þróun á aðferðafræði og framsetningu efnis. Starfið felur einnig í sér samskipti við gagnaveitendur, þjónustu við notendur og kynningu á aðferðafræði. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og fela í sér samskipti við innlenda og erlenda aðila. Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í verkfræði, tölfræði, stærðfræði, hagfræði eða skyldum greinum
- Þekking á vísitölufræðum er kostur
- Reynsla á vinnslu gagnagrunna (t.d. SQL)
- Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu og góð tölvukunnátta
- Geta til að vinna sjálfstætt, skipulega og undir álagi
- Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Góðir greiningarhæfileikar og rökhugsun
- Nákvæmni og einbeiting
- Frumkvæði og agi
- Reynsla af skrifum og framsetningu efnis